Nú eru liðnir nokkrir dagar síðan Oportó kom heim úr einangrun og er skemmst frá því að segja að honum hefur gengið afskaplega vel að aðlagast lífinu hérna hjá okkur. Þessi hundur er mikill höfðingi, einstaklega ljúfur og með yndislega skapgerð. Hann og Fífa eru orðnir miklir vinir og er gaman að sjá hvað þau passa vel saman. Við gætum ekki verið ánægðari með nýja fjölskyldumeðliminn.